fbpx

Mín saga

ÚR SÁRSAUKA Í SIGUR
Líf mitt breyttist varanlega eftir að sonur minn veiktist alvarlega 2015. Þá var ég var að vinna í áhættumæðravernd LSH og sonur minn, afreksíþróttamaðurinn, var í toppformi og lék á alls oddi. Þá gerðist það, 6 vikna spítalalega, 3 vikur á gjörgæslu en engin greining. Lífið hrundi, við tók stanslaus barátta við heilbrigðiskerfið, í 3 ár vaknaði ég á morgnana og vissi ég ekki hvort hann væri á lífi. Stöðug streita, kvíði og vanlíðan, ég var greind með áfallastreituröskun.
Á KROSSGÖTUM

Á þessum tímapunkti stóð ég frammi fyrir tveimur valkostum: Ég gat valið að gefast upp, vera í svartnættinu, lifa í stöðugri óvissu, kvíða, streitu og vanlíðan eða ákveðið að breyta lífi mínu, uppgötvað leiðir til að ná fullri heilsu og endurhannað líf mitt.

MITT VAL

Ég valdi sigur, að takast á við þetta. Í gegnum þetta erfiða verkefni enduruppgötvaði ég mikinn styrkleika sem býr innra með mér og tengingu við kraft sem býr innra með okkur öllum. Það hvatti mig áfram, ég náði fullri heilsu, sonur minn læknaðist og lífið tók algjörum stakkaskiptum.

ÉG VALDI NÝJA LEIÐ

Áfallið leiddi mig á slóðir Jack Canfield og Dr. Deborah Sandella. Ég kláraði nám hjá þeim báðum og er fyrsti og eini Canfield þjálfi í The Success Principles og aðferðarfræði Canfields á Íslandi og fyrsti og eini RIM leiðbeinandi á Íslandi. Í dag starfa ég með fólki á öllum aldri sem er að takast á við erfiðleika, vanlíðan og vandamál.

Alveg sama hvar þú ert á leiðinni til betra lífs og heilsu, aldrei gefast upp! Ég er lifandi sönnun þess að hægt er að umbylta lífi sínu og upplifa gleði, ást og hamingju, alveg sama hvað þú hefur mátt þola. Ég er hér fyrir þig. Fyrst ég gat það getur þú það líka. Ímyndaðu þér breytinguna…

Saman getum við farið úr vanlíðan í vellíðan, í nýtt og betra líf.

HAFÐU SAMBAND

Tengjumst!